Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 24. nóvember 2019 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leikmenn Leicester í Köben - Chilwell klæddur sem Skellibjalla
Ben Chilwell eða Skellibjalla.
Ben Chilwell eða Skellibjalla.
Mynd: Getty Images
Leikmenn Leicester og stuðningsmenn liðsins eru í miklu stuði þessa daganna.

Leicester er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar, átta stigum frá Liverpool. Byrjunin á þessu tímabili hjá Leicester hefur verið betri en þegar félagið vann meistaratitilinn árið 2016.

Leikmenn Leicester sáust í dag í Kaupmannahöfn, höfuðborg Danmerkur, þar sem eru í jólaveislu sinni.

Leikmennirnir voru klæddir upp í grímubúninga. Hamza Choudhury og Demarai Gray voru klæddir sem Sulley úr Monsters Inc., Marc Albrighton var Hrói Höttur, Harvey Barnes var Bósi Ljósár og Ben Chilwell var Skellibjalla.

Hér að neðan má sjá myndband af leikmönnunum í dag.


Athugasemdir
banner
banner
banner