Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 25. janúar 2021 23:30
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Pepe reifst við liðsfélaga eftir sigur
Pepe er harður í horn að taka
Pepe er harður í horn að taka
Mynd: Getty Images
Portúgalski varnarmaðurinn Pepe missti stjórn á skapi sínu eftir 1-0 sigur Porto á Farenese í portúgölsku deildinni í kvöld.

Mehdi Taremi skoraði eina mark leiksins á 15. mínútu en Porto er í 2. sæti deildarinnar með 35 stig, aðeins einu stigi frá toppnum.

Eftir leikinn voru leikmenn að fagna sigrinum og gekk Pepe upp að Mamadou Loum Ndiaye og ætlaði að faðma hann en Ndiaye sagði eitthvað sem Pepe mislíkaði.

Pepe ýtti við Ndiaye og var tilbúinn að láta hendurnar tala áður en liðsfélagar þeirra skildu þá að. Hægt er að sjá myndband af atvikinu hér fyrir neðan.

Sjáðu atvikið hér
Athugasemdir
banner
banner
banner