Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 25. febrúar 2021 22:13
Aksentije Milisic
Rangers og Antwerp settu met
Mynd: Getty Images
Rangers og Antwerp mættust í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar og óhætt er að segja að um tvær stórskemmtilegar viðureignir var að ræða.

Fyrri leikur liðanna endaði 3-4 fyrir Rangers þar sem gestirnir frá Skotlandi gerðu sigurmarkið seint í uppbótartímanum.

Það vantaði síðan ekki mörkin á Ibrox vellinum í kvöld. Steven Gerrard og lærisveinar hans unnu auðveldan 5-2 sigur og fara því áfram með sigur úr einvíginu, 9-5.

Aldrei hafa verið skoruð fleiri mörk í einu einvígi í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar. Það kom mark á 12,8 mínútna fresti. Magnað.


Athugasemdir
banner
banner