Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 25. apríl 2021 15:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ísak Bergmann lagði upp jöfnunarmarkið og skoraði sigurmarkið
Ísak í landsleik gegn Liechtenstein í mars
Ísak í landsleik gegn Liechtenstein í mars
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Norrköping 2 - 1 Halmstad

Ísak Bergmann Jóhannesson lék risastórt hlutverk þegar Norrköping vann 2-1 heimasigur á Halmstad í dag.

Halmstad komst yfir snemma leiks og var staðan 0-1 í hálfleik.

Norrköping jafnaði leikinn á 64. mínútu þegar Samuel Adegbenno skoraði eftir undirbúning frá Ísaki.

Ísak skoraði svo sjálfur á 79. mínútu það sem reyndist sigurmark leiskins.

Ísak lék allan leikinn í dag og Ari Freyr Skúlason, sem einnig var í byrjunarliði Norrköping, spilaði fyrstu 57 mínúturnar.

Norrköping er með fjögur stig eftir þrjá leiki í Allsvenskan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner