Leikmenn Roma fögnuðu ákaft í Albaníu er flautað var til leiksloka í úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu í kvöld en þetta er fyrsti Evróputitillinn í sögu félagsins. Allir voru hressir í leikslok eða fyrir utan einn leikmann.
Ítalski varnarmaðurinn Gianluca Mancini lagði upp eitt mark í leiknum og sinnti þá varnarskyldum sínum vel en hann var þó eitthvað illa fyrirkallaður í dag.
Eftir leik fögnuðu liðsfélagar hans sigrinum en Mancini var ekki á þeim buxunum.
Bryan Cristante, miðjumaður Roma, var fyrstu til að hlaupa að honum en Mancini henti honum frá sér og brást illa við áður en Mancini virtist þá kýla Felix Afena-Gyan stuttu síðar. Það má þó geta til þess að hann huggaði leikmenn Feyenoord eftir leikinn og skemmti sér ágætlega inn á milli en þetta voru tvö verulega furðuleg atvik.
Just won a European final.
— Virgin Media Sport (@VMSportIE) May 25, 2022
Gianluca Mancini just seemed to want to fight with his teammates. 🤷♂️#UECLfinal pic.twitter.com/SM93kIRw1V
Athugasemdir