Fotbolti.net
25.05.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Krísufundur hjá Hömrunum - Tekur fyrrum leikmaður við?

Tekur Scott Parker við?

Tekur Scott Parker við?

Canon

Mynd: EPA

Það er búist við því að Nuno Espirito Santo muni segja staðar numið hjá West Ham og fari ekki með liðinu niður í Championship-deildina. West Ham féll úr ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Nuno tók við í september og gerði þriggja ára samning við félagið. Í 37 leikjum vann West Ham tólf sigra en tapaði sextán. Nuno tók við af Graham Potter einungis átján dögum eftir að hafa verið rekinn frá Nottingham Forest.
West Ham bestir til að falla síðan þeir féllu sjálfir 2003
TENGT EFNI

West Ham bestir til að falla síðan þeir féllu sjálfir 2003

David Sullivan og aðrir í stjórn West Ham hafa fundað með Nuno í morgun og er búist við því að Nuno yfirgefi félagið að fundi loknum.

Alan Pardew, fyrrum stjóri West Ham, hefur sagt að Scott Parker, fyrrum leikmaður félagsins, eigi að taka við.

„Það kannski hentar öllum að Nuno fari og félagið fái inn mann sem þekkir Championship eins og Scott Parker, nafnið hans kemur upp aftur og aftur. Það er ekki frá einum heimildamanni, heldur þremur eða fjórum," segir Pardew.

Parker hefur farið upp með Fulham, Bournemouth og Burnley. Hann hætti hjá Burnley eftir að ljóst varð að félagið myndi falla í vor. Parker var leimaður Hamranna á árunum 2007-11.

Nuno fór upp úr Championship tímabilið 2017/18 þegar hann stýrði Wolves.
Fundað með Nuno.

Fundað með Nuno.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.