Fotbolti.net
25.05.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Samkeppni um allar stöður hjá Víkingi - Líka í liðsstjórn

Samkeppni um allar stöður hjá Víkingi - Líka í liðsstjórn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var kunnuglegt nafn á skýrslu Víkings á föstudagskvöld þegar liðið tók á móti FH í Bestu deildinni.

Halldór Smári Sigurðsson, herra Víkingur, var liðsstjóri í leiknum. Hann kom inn í fjarveru Þóris Ingvarssonar. Halldór Smári er langleikjahæsti leikmaður í sögu Víkings.
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
TENGT EFNI

„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"

„Liðsstjórinn Þórir tók sér smá frí, fór í veiðiferð sem hann átti skilið. Hann er búinn að vinna vel fyrir sínu," segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, á léttu nótunum.

;,Það var bara geggjað að fá Halldór Smára inn sem liðsstjóri, hann er öllu vanur þegar kemur að búningum og svoleiðis, hannaði þá. Það var geggjað að fá herra Víking á bekkinn með okkur, alltaf góð orka og nærvera. Það er samkeppni alls staðar í Víkingi, líka í liðsstjórn," segir Sölvi Geir léttur.

Hópurinn hjá Víkingi er mjög sterkur og er umtalað að Sölvi sé alltaf með mjög öfluga leikmenn til taks á bekknum.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.10+2828
2KR10+1525
3Fram9+920
4Breiðablik9+715
5Valur10-315
6ÍA9-412
7Keflavík9-611
8KA9-310
9Stjarnan10-410
10Þór9-166
11ÍBV9-95
12FH9-142
Þórir fékk frí.

Þórir fékk frí.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samkeppni um allar stöður hjá Víkingi - Líka í liðsstjórn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.