Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. júlí 2022 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bastoni ætlaði aldrei að fara frá Inter
Mynd: EPA

Antonio Conte hefur miklar mætur á ítalska miðverðinum Alessandro Bastoni sem hann þjálfaði hjá Inter fyrir rúmu ári síðan.


Tottenham reyndi að krækja í Bastoni í byrjun sumars og hefði getað náð samkomulagi við Inter en leikmaðurinn hafnaði tækifærinu til að skipta yfir í enska boltann.

„Ég hafði aldrei neinar efasemdir, ég vildi aldrei yfirgefa Inter. Mér líður mjög vel hérna, ég er með frábæra liðsfélaga og stuðningsmenn og ég elska Mílanó. Ég hef enga ástæðu til að skipta um félag," sagði Bastoni við La Gazzetta dello Sport.

Hann hélt svo áfram og talaði um liðsfélaga sinn og landsliðsmann Slóvakíu Milan Skriniar sem er eftirsóttur af PSG.

„Ég vona innilega að Skriniar verði áfram hérna. Við þurfum á honum að halda."


Athugasemdir
banner
banner
banner