Miðjumaðurinn Orel Mangala virðist vera á leiðinni til Nottingham Forest. Það er Florian Plettenberg, blaðamaður hjá Sky Sport í Þýskalandi sem greinir frá.
Mangala er leikmaður Stuttgart og hefur félagið verið í viðræðum við Forest í nokkra daga. Kaupverðið er talið tæplega 13 milljónir punda.
Mangala er leikmaður Stuttgart og hefur félagið verið í viðræðum við Forest í nokkra daga. Kaupverðið er talið tæplega 13 milljónir punda.
Félögin vonast til að hnýta alla lausa enda varðandi skiptin í dag. Ef Mangala gengur í raðir Forest verður hann ellefti leikmaðurinn sem Forest fær í sumar.
Jesse Lingard, Taiwo Awoniyi, Dean Henderson, Giulian Biancone, Moussa Niakhate, Omar Richards, Neco Williams, Wayne Hennessey, Brandon Aguilera, Harry Toffolo og Lewis O'Brien eru þegar gengnir í raðir Forest sem kom upp úr Championship í vor og spilar í úrvalsdeildinni í vetur.
Athugasemdir