Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 25. ágúst 2019 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fiorentina reynir að fá frænda Steven Gerrard frá Liverpool
Mynd: Getty Images
Sky greinir frá því að Fiorentina er búið að leggja fram tilboð í Bobby Duncan, 18 ára framherja Liverpool.

Duncan er frændi Steven Gerrard og gekk í raðir Liverpool í fyrra eftir að hafa verið hjá Manchester City.

Hann skoraði 25 mörk með U18 liðinu á síðustu leiktíð og er Jurgen Klopp talinn hafa miklar mætur á honum.

Fiorentina er bjóða lánssamning með kaupmöguleika en Duncan er mikill stuðningsmaður Liverpool og vill líklega vera áfram þar.

Árið 2016 varð Duncan fyrsti Englendingurinn til að skora þrennu í keppnisleik gegn Brasilíu. Hann skoraði þrennu í 4-3 sigri með U16 landsliði Englands í Rio de Janeiro.
Athugasemdir
banner
banner