Liverpool sigraði í gær Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Mo Salah 2x, og Joel Matip gerðu mörk Liverpool og Lucas Torreira skoraði mark Arsenal.
Liverpool var talsvert öflugra aðilinn í leiknum en Arsenal varðist lengstum vel og var hættulegt í skyndisóknum og hefði í tvígang getað komist 0-1 yfir í fyrri hálfleiknum en Pierre-Emerick Aubameyang og Nicolas Pepe sem spiluðu frammi í gær, tókst ekki að skora.
Roberto Firmino átti ein af tilþrifum leiksins þegar hann lék á Dani Ceballos, lánsmann frá Real Madrid, í liði Arsenal. Firmino vippaði boltanum upp þegr Ceballos kom á ferðinni og fór boltinn yfir öxl Ceballos og þrumaði Firmino á lofti að marki Arsenal en í varnarmann Arsenal.
Tiþrifin má sjá hér að neðan.
Filthy 🔥 pic.twitter.com/cTCB2MB9HG
— Anfield Watch (@AnfieldWatch) August 25, 2019
Athugasemdir