Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 25. ágúst 2020 18:27
Stefán Marteinn Ólafsson
Byrjunarlið Fylkis og Fjölnis: Örvar Eggerts snýr aftur í lið Fjölnis
Örvar Eggertsson snýr aftur í lið Fjölnis
Örvar Eggertsson snýr aftur í lið Fjölnis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld eigast við Fylkir og Fjölnir þegar flautað verður til leiks 12. umferð Pepsi Max deildar karla á Wurth vellinum.

Það má búast við hörkuleik en heimamenn í Fylki gera sér vonir um að gera sig gildandi í Evrópubaráttu á meðan gestirnir í Fjölni eru enn í leit af sínum fyrsta sigri á Íslandsmótinu í sumar.

Byrjunarliðin eru klár en þau má sjá hér fyrir neðan.
Fylkismenn gera eina breytingu á sínu liði en Orri Sveinn Stefánsson kemur inn fyrir Michael Kedman. Fjölnismenn gera þrjár breytingar á sínu liði en út fara Sigurpáll Melberg Pálsson, Grétar Snær Gunnarsson og Ingibergur Kort Sigurðsson fyrir Orra Þórhallsson, Örvar Eggertsson og VIlhjálm Yngva Hjálmarsson.

Byrjunarlið Fylkis:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
7. Daði Ólafsson
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
9. Hákon Ingi Jónsson
11. Valdimar Þór Ingimundarson
16. Ólafur Ingi Skúlason
18. Nikulás Val Gunnarsson
20. Arnar Sveinn Geirsson
24. Djair Parfitt-Williams

Byrjunarlið Fjölnis:
12. Atli Gunnar Guðmundsson (m)
8. Arnór Breki Ásþórsson
10. Viktor Andri Hafþórsson
11. Hallvarður Óskar Sigurðarson
16. Orri Þóhallsson
20. Peter Zachan
23. Örvar Eggersson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
29. Guðmundur Karl Guðmundsson
31. Jóhann Árni Gunnarsson
42. Vilhjálmur Yngi Hjálmarsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner