Súr tilfinning eftir tap í Kórnum - „Þetta er skrefið sem við vildum taka"
Auglýsing

Guðni Þór Einarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK hefur spilað feykivel á tímabilinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Þór Einarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Þór Einarsson, þjálfari HK, var súr með 2-1 tapið fyrir nágrönnum þeirra í Víkingi í Lengjudeild kvenna í kvöld en þetta þýðir að möguleikar HK á að fara upp eru mjög litlir.
Lestu um leikinn: HK 1 - 2 Víkingur R.
HK þurfti sigur í kvöld til að halda í við bæði FH og Tindastól í baráttunni um að fara upp.
Liðið komst yfir snemma leiks en fékk svo tvö mörk á sig og náði liðið sér aldrei almennilega á strik eftir það.
HK er nú fjórum stigum á eftir Tindastól þegar tveir leikir eru eftir og þarf liðið því að treysta tvo sigra og vonast til þess að Tindastóll tapi stigum í síðustu umferðunum.
„Hún er súr. Vildum koma hingað og vinna þennan leik og halda okkur í nálægt við efstu liðin en það var svekkjandi að tapa í kvöld, mjög súrt."
„Við ætluðum heldur betur að byrja af krafti og taka leikinn. Það var markmiðið og gerðum það en svo fáum við nokkur klaufaleg mörk á okkur og misstum dampinn. Náðum okkur aldrei á strik eftir annað markið. Reyndum að fara í langa bolta og gera allt sem við gátum en þetta var svekkjandi í dag," sagði Guðni við Fótbolta.net.
Hann segist ekki hafa fundið fyrir einhverju stressi í leikmönnum fyrir leik.
„Nei, svosem ekki. Ég hafði ekki tilfinningu fyrir leik að leikmenn væru stressaðir. Fannst við afslappaðar og gíraðar í þetta. Við vildum komast í þessa stöðu að vera í toppbaráttu og gera atlögu að efstu liðunum. Við erum þar ennþá þannig við höfum komist langt í sumar og komist á þann stað sem við vildum vera á en að hafa sagt það þegar við erum komnar í þessa stöðu að eiga raunhæfan möguleika á að komast upp þá viltu setja allar klær út og reyna að grípa það en þetta er svosem ekki búið. Þetta er ólíklegt eins og er en við viljum klára leikina af krafti."
Miði er enn möguleiki og allt getur nú gerst í fótbolta en fyrirfram hefði hann alltaf tekið því að vera á þessum stað eftir erfitt tímabil á síðasta ári.
„Jú er það ekki bara? Spenna saman greipar og sjá til? Við förum í þessa tvo leiki eins og við höfum gert í sumar. Enda tímabilið af krafti og sjá hvert það skilar okkur. Við erum með 32 stig í dag og fyrirfram hefði ég alltaf tekið það á þessum tímapunkti að liðið sé í bullandi botnbaráttu í fyrra og sé í bullandi toppbaráttu núna og það er skrefið sem við vildum taka og viljum halda okkur þar, sem mest," sagði hann í lokin.