Þýski miðillinn Bild greinir frá því að Ademola Lookman sé við það að skipta yfir til Fulham á lánssamningi sem gildir út tímabilið.
Lookman er öflugur kantmaður sem verður 23 ára í október. Hann hóf ferilinn hjá Charlton, var svo keyptur til Everton fyrir 10 milljónir punda og fór síðan til RB Leipzig að láni í janúar 2018.
Hann skoraði fimm mörk í ellefu leikjum í þýsku deildinni og ákvað félagið að kaupa hann í kjölfarið. Lookman tókst þó ekki að brjótast inn í lið Julian Nagelsmann í fyrra og spilaði hann aðeins 13 leiki á tímabilinu, án þess að skora mark.
Bild segir Fulham greiða 2 milljónir evra fyrir lánssamninginn.
Lookman er lágvaxinn og snöggur. Hann hefur spilað 31 leik fyrir yngri landslið Englands og skorað 5 mörk.
Athugasemdir