Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 25. september 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Onana gæti framlengt við Ajax
Andre Onana
Andre Onana
Mynd: Getty Images
Kamerúnski markvörðurinn Andre Onana er opinn fyrir því að framlengja samning við hollenska félagið Ajax.

Onana er 25 ára gamall og er með betri markvörðum í Evrópu en hann var eftirsóttur af stórliðum áður en hann var dæmdur í eins árs bann fyrir að hafa fallið á lyfjaprófi.

Konan hans var þunguð á þeim tíma sem hann féll á lyfjaprófinu og segist hann óvart hafa innbyrt hennar lyf, sem eru á bannlista lyfjaeftirlitsins, og því fór sem fór.

Íþróttadómstóllinn í Sviss stytti bann Onana um þrjá mánuði og getur markvörðurinn því byrjað að spila í nóvember.

Samningur hans við Ajax rennur út næsta sumar en hann hefur rætt við nokkur félög. Hann er þó enn opinn fyrir því að vera áfram hjá Ajax.

„Ég er opinn fyrir öllu. Ajax verður að gera það sem er best í stöðunni fyrir félagið. Ég er að sjálfsögðu tilbúinn að framlengja samning minn hér," sagði Onana við Telegraaf.
Athugasemdir
banner
banner
banner