25.09.26 - 20:38
Magnús Atlason
Einar Guðna: Enginn vildi gefa eftir
Auglýsing

Einar Guðnason, þjálfari Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Guðnason, þjálfari Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Botnlið Vals og Víkings gerðu 1-1 jafntefli í sannkölluðum fallslag nú í kvöld. Fótbolti.net var að sjálfsögðu á staðnum og náði viðtali af Einari Guðnasyni, þjálfara Víkings, eftir leik.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 1 Víkingur R.
"Þetta var rosa spenna, rosa tension. Auðvitað hefði ég viljað fá meira en ég held að þetta hafi verið sanngjarnt, bæði liðin áttu eitt skot í slá. Bæði liðin börðust vel og vörðust vel og enginn vildi gefa eftir."
Sagði Einar um leikinn. Víkingur byrjaði leikinn af miklum krafti og komust í tvö dauðafæri í upphafi leiks.
"Við vildum alltaf byrja af krafti og þetta var vel gert hjá okkur. Bara óheppni, þetta var eitthvað millimetra spursmál að ná að pota boltanum í markið."
Síðasti leikur tímabilsins er leikur gegn Þór/KA sem er hreinn úrslitaleikur um sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili. "Hvernig leggst hann í þig."
"Það er svona hálf mínúta síðan ég vissi hvernig sá leikur fór. Ég er ekki alveg búinn að melta það, ég var bara að klára þennan leik og nú fer undirbúningur fyrir þann leik í gang."
Horfðu á viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.