Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   sun 25. október 2020 16:17
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu rauða spjaldið sem Digne fékk gegn Southampton
Mynd: Getty Images
Franski bakvörðurinn Lucas Digne var á sínum stað í byrjunarliði Everton sem heimsótti Southampton í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Everton átti slakan leik og komust heimamenn í Southampton í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik.

Forystunni var í raun aldrei ógnað af Everton og gerðist lítið marktækt í síðari hálfleik að undanskildu rauðu spjaldi sem Digne fékk fyrir klaufalegt brot sem leit afar illa út.

Digne steig á fót Kyle Walker-Peters á mikilli ferð og runnu þeir áfram nokkra metra, Digne með takkana ofan á fæti og ökkla Walker-Peters. Sjón er sögu ríkari og er hægt að sjá myndband af atvikinu með að smella hér.

Walker-Peters stóð þó upp, harkaði þetta af sér og kláraði síðustu 20 mínúturnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner