Fotbolti.net
25.11.19 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Hazard: Mbappe verður einn besti leikmaður sögunnar

Kylian Mbappe leikmaður PSG

Kylian Mbappe leikmaður PSG

Canon

Mynd: Getty Images

„Eftir nokkur ár verður hann klárlega besti leikmaður í heimi," sagði Eden Hazard, leikmaður Real Madrid, þegar hann tjáði sig um Kylian Mbappe um helgina.
„Það eru margir leikmenn að berjast um þetta en ef hann heldur svona áfram þá verður Kylian einn besti fótboltamaður sögunnar."

Hazard vill fá hinn tvítuga Mbappe til Real Madrid en sagt er að PSG hafi sett 343 milljóna punda verðmiða á leikmanninn.

„Fótboltamanni dreymir alltaf að spila við hlið þeirra bestu. Ef ég gæti náð í Kylian til Real Madrid á morgun þá myndi ég reyna," sagði Hazard.

„Það er hins vegar ekki ég sem ákveð það og ég verð örugglega ekki einu sinni spurður álits."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.