Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 25. nóvember 2020 16:00
Magnús Már Einarsson
Mourinho vekur athygli á Instagram - Sýnir bakvið tjöldin
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, opnaði aðgang á Instagram fyrr á þessu ári og hefur vakið athygli þar. Mourinho segist vilja sýna bakvið tjöldin hjá Tottenham á aðgangi sínum.

Eftir tap gegn Antwerp í Evrópudeildinni birti Mourinho áhugaverðan póst þar sem hann hann lýsti yfir óánægju sinni með spilamennskuna og sagði mönnum að vera klárir á æfingu í fyrramálið. Í gær birti hann mynd af risaskinku sem hann keypti fyrir Sergio Reguilon eftir sigurinn gegn Manchester City.

„Póstarnir eru eins og þeir eru. Ég birti færslu tíu mínútum eftir þetta skelfilega tap gegn Antwerp. Ég birti ekkert beint eftir leikinn við Man City, það var góður sigur og við vorum allir ánægðir," sagði Mourinho.

„Ég er bara að reyna að opna heiminn hjá okkur. Fólk elskar að sjá bakvið tjöldin það sem það sér ekki vanalega. Velgengin með Amazon þættina var af því að þeir voru svo opnir. Þeir eru skemmtilegir fyrir alla."

„Instagram er tækifæri til að sýna litla hluti sem særa enga. Það er ekkert vandamál. Sumar færslur eru fyndnar og aðrar ekki þegar þú ert reiður."


Hér má sjá Instagram færslur frá Mourinho.


Athugasemdir
banner
banner