Spænski blaðamaðurinn Gerard Romero segir að Barcelona sé að vinna í því að fá belgíska hægri bakvörðinn Thomas Meunier til félagsins frá Borussia Dortmund.
Meunier, sem er 30 ára gamall, er fastamaður í liði Dortmund og belgíska landsliðinu.
Barcelona vill styrkja hægri bakvarðarstöðuna og passar hann algerlega inn í hugmyndafræði Xavi.
Samvæmt Romero þá er Barcelona reiðubúið að láta Dortmund fá bandaríska bakvörðinn Sergino Dest í skiptum.
Dest hefur lítið spilað með Barcelona síðustu vikur, bæði vegna covid og meiðsla.
Börsungar eru einnig að vinna í því að fá Alvaro Morata en það veltur allt á því hvort Juventus takist að krækja í Dusan Vlahovic frá Fiorentina.
Athugasemdir