Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 26. febrúar 2021 07:30
Aksentije Milisic
„Myndi ekki vilja fá leikmann eins og Bellerín"
Mynd: Getty Images
John Barnes, fyrrverandi leikmaður Liverpool, segir að Hector Bellerín kæmist ekki í liðið hjá PSG ef hann færi til liðsins.

Þessi 25 ára bakvörður hefur mikið verið orðaður við PSG en liðið hafi áhuga á honum síðasta sumar.

Barnes, sem er ekki mikill aðdáandi Bellerín, gaf hreinskilið svar um spænska bakvörðinn.

„Ég myndi ekki vilja fá leikmann eins og hann ef ég væri þjálfari. Hann myndi komast á bekkinn hjá PSG, en ekki á völlinn," sagði Barnes.

„Ef liðið þitt spilar illa, þá viltu leikmenn sem vilja hjálpa liðinu að bæta sig og ná í úrslit, en ekki leikmann sem talar um að yfirgefa félagið á miðju tímabili þegar illa gengur."

„Hann skuldar Arsenal meira heldur en það. Ef hann vill ekki eyða bestu árum sínum í boltanum á bekknum, þá fer hann ekki til PSG, það er ljóst."

Bellerín hefur spilað 27 leiki fyrir Arsenal á þessu tímabili og verið fyrirliði í sex af þeim leikjum.

Athugasemdir
banner
banner
banner