Arsenal er með Carlos Soler, miðjumann Valencia, á óskalista sínum að sögn Sky Sports.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, vill fá hinn 23 ára gamla Soler til félagsins í sumar.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, vill fá hinn 23 ára gamla Soler til félagsins í sumar.
Soler hefur verið í lykihlutverki hjá Valencia undanfarin ár en hann er fyrrum U21 landsliðsmaður Spánar.
Soler gerði nýjan samning við Valencia í desember en félagið er í fjárhagsvandræðum og þarf að selja leikmenn til að rétta fjárhaginn af.
Arsenal gæti reynt að nýta sér það með því að reyna að kaupa Soler í sumar.
Athugasemdir