Liverpool og Newcastle gætu skipst á framherjum - Bayern undirbýr tilboð í Verbruggen - Man Utd horfir til Sporting
banner
   mið 26. mars 2025 09:30
Elvar Geir Magnússon
Boltabíllinn bilaði og Mbappe tók málin í sínar hendur
Kylian Mbappe.
Kylian Mbappe.
Mynd: EPA
Skondið atvik átti sér stað fyrir leik Frakklands og Króatíu á dögunum en lítill rafmagnsbíll frá styrktaraðila bilaði á miðri leið. Bíllinn sá um að flytja keppnisboltann að miðjuhringnum en þegar kom að því að keyra til baka virtist hann vera rafmagnslaus.

Stórstjarnan Kylian Mbappe tók þá til sinna ráða og tók bílinn upp og lét hann í hendur starfsmanns svo hægt væri að hefja leik.

Frakkland vann einvígið við Króatíu svo í vítakeppni og komst í 8-liða úrslit Þjóðadeildarinnar. Með sigrinum varð einnig ljóst að Frakkar verða í riðli með Íslandi í undankeppni HM.


Athugasemdir
banner