Fotbolti.net
26.05.22 - 15:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Orri Steinn framlengir við FCK og færður upp í aðalliðið (Staðfest)

Orri Steinn framlengir við FCK og færður upp í aðalliðið (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Orri Steinn Óskarsson leikmaður FC Kaupmannahafnar hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Samningurinn er til ársins 2025.

Orri hefur farið hamförum með u-19 ára liðinu en hann skoraði 29 mörk í 24 leikjum á þessari leiktíð.

Hann lék sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið í lokaumferðinni þegar hann kom inná sem varamaður þegar rúmlega stundarfjórðungur var til leiksloka.

Aðalliðið varð danskur meistari eftir 3-0 sigur á Álaborg í loka umferðinni en Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson skoruðu sitt markið hvor í leiknum.

Orri mun sameinast löndum sínum á næstu leiktíð og leika með aðalliði félagsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.