Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 26. júní 2022 15:10
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið KA og Fram: Stubbur og Hallgrímur Mar á bekknum
Jajalo er í marki KA.
Jajalo er í marki KA.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KA og Fram mætast á Akureyri klukkan 16 í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Kristijan Jajalo er í marki KA en Stubbur, Steinþór Már Auðunsson, vermir varamannabekkinn líkt og Hallgrímur Mar Steingrímsson.

Lestu um leikinn: KA 4 -  1 Fram

Margir bjuggust við að Jón Sveinsson þjálfari Fram myndi gera margar breytingar á byrjunarliðinu eins og hann er vanur í bikarnum en svo er ekki. Markahrókurinn Guðmundur Magnússon er á sínum stað í fremstu víglínu.

Jóhann Þór Hólmgrímsson textalýsir í beinni frá nýja Greifavellinum.

Byrjunarlið KA:
12. Kristijan Jajalo (m)
2. Oleksii Bykov
3. Dusan Brkovic
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Ívar Örn Árnason (f)
7. Daníel Hafsteinsson
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson (f)
21. Nökkvi Þeyr Þórisson
27. Þorri Mar Þórisson
30. Sveinn Margeir Hauksson

Byrjunarlið Fram:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
6. Gunnar Gunnarsson
6. Tryggvi Snær Geirsson
7. Guðmundur Magnússon
10. Fred Saraiva
13. Jesus Yendis
15. Hosine Bility
21. Indriði Áki Þorláksson
23. Már Ægisson
26. Jannik Pohl
28. Tiago Fernandes
Athugasemdir
banner