Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 26. júní 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Simons að framlengja við PSG - Verður lánaður til Hollands
Xavi Simons
Xavi Simons
Mynd: Getty Images
Hollenska undrabarnið Xavi Simons er nálægt því að framlengja samning sinn við franska stórliðið Paris Saint-Germain. Ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano segir frá.

Simons er 19 ára gamall en hann kom til PSG frá Barcelona fyrir þremur árum.

Hann er uppalinn hjá Barcelona og þótti einn efnilegasti leikmaður heims fyrir nokkrum árum.

Simons skrifaði undir hjá ítalska ofurumboðsmanninum Mino Raiola þegar hann var aðeins 14 ára gamall.

Samningur Simons við PSG rennur út um mánaðamótin en samkvæmt Romano þá mun hann gera nýjan langtímasamning á næstu dögum.

Leikmaðurinn verður svo í kjölfarið lánaður til PSV Eindhoven í Hollandi þar sem hann mun halda áfram að þróa leik sinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner