Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 26. ágúst 2020 08:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bestur í 2. deild: Byrjaði frammi og skoraði tvö - Fór svo á miðjuna
Davið Þór Ásbjörnsson (Kórdrengir)
Davíð Þór Ásbjörnsson.
Davíð Þór Ásbjörnsson.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Davíð Þór Ásbjörnsson, leikmaður Kórdrengja, átti mjög góðan leik gegn Dalvík/Reyni þegar Kórdrengir sóttu þrjú stig á Dalvík/Reynir í miðri síðustu viku. Leikurinn var liður í 12. umferð deildarinnar en þeirri tíundu ef litið er framhjá frestuðum umferðum.

Davíð skoraði bæði mörk toppliðsins í 1-2 útisigri. Davíð lék í framlínu Kórdrengja í fyrri hálfleik og féll svo niður á miðjuna þegar leið á leikinn. Bæði mörk Davíðs komu eftir sendingu frá Alberti Brynjari Ingasyni. Fyrir frammistöðuna er Davíð Þór ICE-leikmaður umferðarinnar í 2. deild. Það eru þeir Sverrir Mar Smárason og Óskar Smári Haraldsson, umsjónarmenn hlaðvarpsþáttarins Ástríðan sem sjá um valið á leikmanni umferðarinnar. Hlusta má á nýjustu þættina hér neðst í þessari frétt.

„Vel að því kominn, tvö mörk - kemur Kórdrengjum 2-0 yfir og fer svo niður á miðjuna og brýtur sóknir niður hvað eftir annað," sagði Óskar Smári.

„Frábær í þessum leik. Byrjaði frammi með Alberti í 3-5-2," sagði Sverrir Mar.

Davíð Þór er fæddur árið 1992 og er á sínu öðru tímabili með Kórdrengjum. Hann gekk í raðir félagsins frá Fylki um mitt sumar í fyrra. Ásamt því að hafa leikið með Fylki á sínum ferli þá lék Davíð tvö sumur með Þrótti Reykjavík.

Sjá einnig:
Bestur í 1. umferð - Hrvoje Tokic (Selfoss)
Bestur í 2. umferð - Oliver Helgi Gíslason (Haukar)
Bestur í 3. umferð - Nikola Dejan Djuric (Haukar)
Bestur í 4. umferð - Hrannar Snær Magnússon (KF)
Bestur í 5. umferð - Dino Hodzic (Kári)
Bestur í 6. umferð - Andy Pew (Þróttur Vogum)
Bestur í 7. umferð - Þorsteinn Aron Antonsson (Selfoss)
Bestur í 8. umferð - Oumar Diouck (KF)
Bestur í 9. umferð - Alexander Helgason (Þróttur V.)
Ástríðan - 2. og 3. deild komnar aftur á fleygiferð
Ástríðan - Yfirferð yfir leiki síðustu helgar
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner