Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   mán 26. ágúst 2024 17:00
Elvar Geir Magnússon
Lars Lagerback minnist Sven-Göran Eriksson
Lars Lagerback og Sven-Göran Eriksson.
Lars Lagerback og Sven-Göran Eriksson.
Mynd: Getty Images
Svíinn Lars Lagerback, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, skrifaði stutt minningarorð um landa sinn Sven-Göran Eriksson en Viaplay hefur birt þau.

Þar rifjar Lagerback upp fyrstu kynni sín af Eriksson seint á áttanda áratug síðustu aldar en þeir hittust í sérstökum æfingabúðum fyrir efnilegustu leikmenn Svíþjóðar.

„Sven-Göran var sami hógværi og jarðbundni maðurinn í hvert einasta sinn sem við hittumst, allt til æviloka. Þrátt fyrir ótrúlegan árangur hans breyttist framkoma hans ekki. Hvíl í friði," skrifar Lagerback.

Sven-Göran lést á heimili sínu í morgun eftir erfiða baráttu við krabbamein. Hann var 76 ára.

Eriksson var fyrsti erlendi þjálfarinn til að stýra enska landsliðinu en hann kom liðinu í 8-liða úrslit HM 2002 og 2006.

Eriksson átti langan feril í þjálfun en starfaði síðast sem yfirmaður íþróttamála hjá sænska félaginu Karlstad. Hann lét af störfum þar í upphafi síðasta árs vegna heilsufarsvandamála.

Eriksson hóf stjóraferil sinn með Degerfors 1977 áður en hann tók við Gautaborg þar sem hann vann sænska titilinn, tvo bikartitla og Evrópubikarinn 1981.

Hann átti tvo kafla hjá Benfica í Portúgal ásamt því að stýra Roma, Fiorentina, Sampdoria og Lazio á Ítalíu. Hann vann sjö titla hjá Lazio, þar á meðal ítalska meistaratitilinn, tvo ítalska bikara og Evrópukeppni bikarhafa.

Eriksson sagði upp hjá Lazio í janúar 2001 til að taka við enska landsliðinu af Kevin Keegan. Hann hætti þar eftir HM 2006 þrátt fyrir að eiga tvö ár eftir af samningi sínum. Engin opinber skýring var gefin út á þeim tíma en hann hafði lent í umfjöllun enskra slúðurblaða vegna kvennafars.

Eftir þetta kom hann víða við á sínum ferli og stýrði þar á meðal Manchester City, Leicester og landsliðum Mexíkó, Fílabeinsstrandarinnar og Filippseyja. Hans síðustu stjórastörf í félagsliðaboltanum voru í Kína.
Athugasemdir
banner
banner