Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 26. september 2020 16:29
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Jafnt í fyrri úrslitaleik Kormáks/Hvatar og ÍH
ÍH á heimaleikinn eftir gegn Kormáki/Hvöt.
ÍH á heimaleikinn eftir gegn Kormáki/Hvöt.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Kormákur/Hvöt 1 - 1 ÍH
0-1 Hafþór Þrastarson ('18)
1-1 Ingvi Rafn Ingvarsson ('57)
Úrslit og markaskorarar af úrslit.net

Kormákur/Hvöt og ÍH áttust við í fyrri leik liðanna um laust sæti í 3. deildinni á næsta ári.

Gestirnir frá Hafnarfirði komust yfir í fyrri hálfleik þökk sé marki frá Hafþóri Þrastarsyni og leiddu þeir í leikhlé.

Ingvi Rafn Ingvarsson jafnaði þó fyrir Kormák/Hvöt snemma í síðari hálfleik og urðu lokatölur 1-1.

Það er því enn allt opið fyrir seinni viðureign liðanna sem fer fram í Skessunni miðvikudaginn 30. september klukkan 18:00.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner