Arsenal á góða möguleika á að fá Rodrygo - Atletico leggur allt kapp á að fá Romero - West Ham hafnaði tilboði í Kudus
   lau 26. september 2020 18:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Schalke „ósegjanlega slakir"
Schalke 04 1 - 3 Werder
0-1 Niclas Fullkrug ('22 )
0-2 Niclas Fullkrug ('37 )
0-3 Niclas Fullkrug ('59 , víti)
1-3 Mark Uth ('90 )
Rautt spjald: Ozan Kabak, Schalke 04 ('84)

Werder Bremen lagði Schalke að velli þegar liðin áttust við í lokaleik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni.

Niclas Fullkrug átti stórleik fyrir Werder og skoraði þrennu. Mark Uth minnkaði muninn fyrir Schalke þegar lítið var eftir af leiknum.

Schalke hefur alls ekki litið vel út í fyrstu tveimur deildarleikjum tímabilsins. Liðið tapaði 8-0 gegn Schalke í fyrsta leik. Raphael Honigstein, blaðamaður The Athletic, er ekki hrifinn af því sem hann hefur séð frá Schalke það sem af er þessu tímabili.

„Schalke eru ósegjanlega slakir," skrifaði Honigstein á Twitter en honum fannst heimamenn örlítið skárri í seinni hálfleik.

Önnur úrslit:
Þýskaland: Alfreð spilaði í sigri gegn Dortmund
Athugasemdir
banner