Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 27. janúar 2020 15:15
Magnús Már Einarsson
Aldís Kara, Selma og Melkorka ekki með FH í sumar
Aldís Kara Lúðvíksdóttir.
Aldís Kara Lúðvíksdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aldís Kara Lúðvíksdóttir og Selma Dögg Björgvinsdóttir verða ekki með FH í Pepsi Max-deildinni í sumar. Þær eru báðar barnshafandi.

Aldís Kara skoraði þrjú mörk í sextán leikjum og Selma skoraði fjögur mörk í sautján leikjum þegar FH fór upp úr Inkasso-deildinni síðastliðið sumar.

Þá verður Melkorka Katrín Fl Pétursdóttir heldur ekkert með FH í sumar.

Melkorka missti af síðasta tímabili eftir að hafa slitið krossband en hún varð fyrir því óláni að slíta aftur krossband á dögunum eftir tæplega eins árs endurhæfingu.

Melkorka spilaði síðast með FH í Pepsi-deildinni árið 2018.
Athugasemdir
banner
banner
banner