Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hefur kastað út líflínu fyrir Shkodran Mustafi. Mustafi er alls ekki uppáhald flestra stuðningsmanna Arsenal en Arteta segir hann geta átt framtíð hjá félaginu.
„Þegar hann er minn leikmaður og hann æfir hjá mér eins og hann gerir alla daga, þá getur hann það að sjálfsögðu," sagði Arteta aðspurður hvort Mustafi gæti átt framtíð til langstíma litið hjá Arsenal.

„Plönin vou kannski öðruvísi áður en ég kom. Hann er með rétt hugarfar og hann vinn hjálpa til."
„Já, hann hefur gert mistök, en það er í lagi. Ég er hrifnari af því hvernig hann bregst við og hann hefur brugðist vel við," sagði Arteta að lokum.
Athugasemdir