Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. janúar 2021 15:38
Magnús Már Einarsson
Mourinho reiknar með að halda Alli
Dele Alli
Dele Alli
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, reiknar ekki með að Dele Alli fari til PSG áður en félagaskiptaglugginn lokar á mánudag.

Mauricio Pochettino, þjálfari PSG, vill fá sinn gamla lærisvein Alli á láni út tímabilið en miðjumaðurinn hefur lítið spilað hjá Tottenham á tímabilinu.

„Ég reikna með að hann verði áfarm hér og ég hef sagt þetta frá byrjun félagaskiptagluggans," sagði Mourinho.

„Ég bjóst ekki við að einhver myndi fara eða einhver myndi koma. Við erum komnir undir lok gluggans og ég held að ekkert gerist en það er samt ennþá opið."

„Fótbolti er fótbolti og félagaskipaglugginn er opin og stundum geta óvæntir hlutir gerst. Ég reikna þó ekki með því."

Athugasemdir
banner
banner
banner