Chelsea blandar sér í baráttu við Arsenal um Isak - Real Madrid hyggst lána eftirsóttan Guler - Mourinho ekki að reyna við Ronaldo
banner
banner
þriðjudagur 19. nóvember
Þjóðadeildin
sunnudagur 17. nóvember
U21 - Vináttuleikur
laugardagur 16. nóvember
Þjóðadeildin
U19 karla - Undank. EM 2025
fimmtudagur 7. nóvember
Sambandsdeildin
þriðjudagur 5. nóvember
Undankeppni EM U17
sunnudagur 27. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 24. október
Vináttulandsleikur
Sambandsdeildin
sunnudagur 20. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 19. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
þriðjudagur 15. október
Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
mánudagur 14. október
Landslið karla - Þjóðadeild
föstudagur 11. október
fimmtudagur 10. október
Undankeppni EM U21 karla
sunnudagur 6. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 5. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 3. október
Sambandsdeild Evrópu
mánudagur 30. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 29. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 27. september
Fótbolti.net bikarinn
miðvikudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 23. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeildin - Umspil
sunnudagur 22. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Lengjudeildin - Umspil
laugardagur 21. september
Mjólkurbikarinn - Úrslit
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 20. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 19. september
Lengjudeild karla - Umspil
miðvikudagur 18. september
Lengjudeildin - Umspil
mánudagur 16. september
Besta-deild karla
föstudagur 13. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Besta-deild karla
fimmtudagur 12. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
þriðjudagur 10. september
Undankeppni EM U21
Æfingamót í Slóveníu
mánudagur 9. september
Þjóðadeildin
laugardagur 7. september
Meistaradeild kvenna - forkeppni
Lengjudeild karla
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild kvenna
Æfingamót U19 karla
föstudagur 6. september
Þjóðadeildin
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 5. september
Æfingamót U19 karla
miðvikudagur 4. september
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
mánudagur 25. nóvember
Úrvalsdeildin
Newcastle - West Ham - 20:00
Serie A
Empoli - Udinese - 17:30
Venezia - Lecce - 19:45
fim 27.apr 2017 12:00 Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 1. sæti: FH

FH-ingar verða Íslandsmeistarar þriðja árið í röð í sumar ef spá Fótbolta.net rætist. Fréttaritarar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig.

FH vann Fótbolta.net mótið í fyrsta skipti í vetur.
FH vann Fótbolta.net mótið í fyrsta skipti í vetur.
Mynd/Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Steven Lennon.
Steven Lennon.
Mynd/Fótbolti.net - J.L.
Atli Guðnason á ferðinni.
Atli Guðnason á ferðinni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kassim missir af byrjun móts.
Kassim missir af byrjun móts.
Mynd/Fótbolti.net - J.L.
Emil Pálsson vinnur skallabolta.
Emil Pálsson vinnur skallabolta.
Mynd/Fótbolti.net - J.L.
Halldór Orri kom til FH í vetur.
Halldór Orri kom til FH í vetur.
Mynd/Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Davíð og Gunnar eru lykilmenn hjá FH.
Davíð og Gunnar eru lykilmenn hjá FH.
Mynd/Fótbolti.net - J.L.
Spáin:
1. FH 96 stig
2. Valur 81 stig
3. KR 79 stig
4. Stjarnan 76 stig
5. Breiðablik 66 stig
6. Fjölnir 52 stig
7. KA 44 stig
8. Víkingur R. 42 stig
9. ÍBV 35 stig
10. ÍA 24 stig
11. Grindavík 19 stig
12. Víkingur Ólafsvík 10 stig

Um liðið: FH varð Íslandsmeistari annað árið í röð í fyrra. Eftir svekkjandi tap gegn Stjörnunni í lokaumferðinni 2014 þá settu Hafnfirðingar í annan gír og hafa auðveldlega landað titlinum undanfarin tvö ár. Fimleikafélagið spilaði ekki jafn skemmtilegan fótbolta í fyrra og oft áður. Liðið hafði hins vegar yfirburði í Pepsi-deildinni og titillinn var í höfn þegar tvær umferðir voru eftir.

Þjálfari – Heimir Guðjónsson: Heimir hefur stýrt FH frá því haustið 2007 en hann var áður leikmaður og aðstoðarþjálfari hjá félaginu. Ferilskráin talar sínu máli og ljóst að þarna fer einn allra hæfasti þjálfari landsins enda með fullan verðlaunaskáp. Eftir síðasta tímabil skipti Heimir um aðstoðarþjálfara en Ólafur Páll Snorrason kom þá frá Fjölni. Hann tók við stöðu Guðlaugs Baldurssonar sem hefur verið hægri hönd Heimis undanfarin ár.

Skortur á miðvörðum

Styrkleikar: FH hefur misst fáa leikmenn úr hópnum síðan í fyrra og lykilmennirnir frá því í fyrra eru ennþá allir á sínum stað. Hefðin fyrir toppbaráttu og titlum er rík í Hafnarfirði en FH-ingar hafa endað í fyrsta eða öðru sæti í efstu deild síðan árið 2003. Reynslan í liðinu er mikil og flestir leikmenn eiga nokkra verðlaunapeningana heima hjá sér. Mikil samkeppni er um fremstu stöðurnar sem og stöðurnar á miðjunni þar sem valinn maður er í hverju rúmi. Heimir þarf ekki að kvíða því þegar kemur að því að skipta varamönnum inn á til að lífga upp á sóknarleikinn í sumar.

Veikleikar: Engin breidd er í miðvarðarstöðunni. FH hefur prófað að spila með þrjá miðverði í vetur en liðið fór aftur í fjögurra manna línu gegn Val í vikunni vegna skorts á miðvörðum. Kassim Doumbia og Bergsveinn Ólafsson eru einu miðverðirnir í hópnum og sá fyrrnefndi missir af byrjuninni vegna meiðsla. FH hefur oft gert stærri hluti á leikmannamarkaðinum en í ár og nýir menn sem komu til liðsins þurfa að sanna sig í sumar.

Lykilmenn: Davíð Þór Viðarsson og Gunnar Nielsen. Fyrirliðinn hefur drifið Íslandsmeistarana áfram á miðjunni undanfarin ár. Átti frábært tímabil í fyrra. Það var hvalreki fyrir FH þegar Gunnar kom yfir úr Garðabænum haustið 2015. Færeyski landsliðsmarkvörðurinn sannaði gildi sitt heldur betur í fyrra með því að verja vel á lykil augnablikum og hjálpa FH að landa titlinum.

Gaman að fylgjast með: Robbie Crawford, fyrrum miðjumaður Rangers, samdi við FH nú í vor. Hefur virkað öflugur í fyrstu leikjum sínum í hvítu treyjunni og gaman verður að sjá hann í Pepsi-deildinni. Leikmaður sem kom óvænt upp á borðið hjá FH í vetur.

Spurningamerkið: Ætlar FH að spila 3-4-3 eins og í vetur eða fara aftur í gamla góða 4-3-3 kerfið? Hvernig mun Hafnfirðingum vegna ef þeir prófa nýtt leikkerfi í sumar? 4-3-3 kerfið hefur verið notað hjá FH frá því í kringum aldamót og það yrði áhugavert að sjá Fimleikafélagið í nýju kerfi í sumar.

Völlurinn: Kaplakrikavöllur er glæsilegur leikvangur sem alltaf er gaman að heimsækja. Miklar framkvæmdir hafa verið á svæðinu og FH-ingar eru alltaf að vinna í að bæta og breyta. Það er nóg af sætum og stórleikir njóta sín vel í Hafnarfirðinum.

„Það er sáð til þess að uppskeran verði þessi."

Formaðurinn segir – Jón Rúnar Halldórsson
„Spáin kemur mér ekki á óvart miðað við umræðuna og við erum fullir stolti yfir því. Það er sáð til þess að uppskeran verði þessi. Það er aðeins meira um eymsl í hópnum heldur en ég hefði viljað en líkt og fyrri ár þá er ég sáttur að vori og fullur tilhlökkunar. Ég held að þetta verði barátta fjögurra eða fimm liða. Ég sé þá fyrir mér þessi lið sem er spáð efstu sætunum. Ég sé ekki endilega eitthvað óvænt fyrir mér í því, þó að fótboltinn sé alltaf skemmtilegur út af óvæntum atburðum."

Sjá einnig:
Heimir Guðjóns: Höfum reynt að laga sóknarleikinn
Hin hliðin - Grétar Snær Gunnarsson
„Cheick Tiote ætlaði að drepa mig út af Playstation fjarstýringu“

Komnir:
Guðmundur Karl Guðmundsson frá Fjölni
Halldór Orri Björnsson frá Stjörnunni
Robbie Crawford frá Skotlandi
Veigar Páll Gunnarsson frá Stjörnunni
Vignir Jóhannesson frá Selfossi

Farnir:
Brynjar Ásgeir Guðmundsson í Grindavík
Hörður Ingi Gunnarsson í Víking Ó. á láni
Jeremy Serwy til Belgíu
Kaj Leo í Bartalsstovu í ÍBV
Kristján Finnbogason hættur
Sam Hewson í Grindavík
Sonni Ragnar Nattestad í Molde

Leikmenn FH sumarið 2017:
1 Gunnar Nielsen
4 Pétur Viðarsson
5 Bergsveinn Ólafsson
6 Robert David Crawford
7 Steven Lennon
8 Emil Pálsson
9 Þórarinn Ingi Valdimarsson
10 Davíð Þór Viðarsson
11 Atli Guðnason
12 Vignir Jóhannesson
13 Bjarni Þór Viðarsson
14 Grétar Snær Gunnarsson
16 Jón Ragnar Jónsson
17 Atli Viðar Björnsson
18 Kristján Flóki Finnbogason
20 Kassim Doumbia
21Böðvar Böðvarsson
22 Halldór Orri Björnsson
23 Veigar Páll Gunnarsson
25 Einar Örn Harðarson
26 Jonathan Hendrickx
29 Guðmundur Karl Guðmundsson

Leikir FH 2017:
30.apríl ÍA – FH
8.maí FH – KA
15.maí Valur – FH
22.maí FH – Fjölnir
28.maí KR – FH
4.júní FH – Stjarnan
14.júní Grindavík – FH
18.júní FH – Víkingur R
25.júní ÍBV – FH
9.júlí FH – Víkingur Ó
15.júlí Breiðablik – FH
23.júlí FH – ÍA
30.júlí KA – FH
8.ágúst FH – Valur
14.ágúst Fjölnir – FH
20.ágúst FH – KR
27.ágúst Stjarnan – FH
10.sept FH – Grindavík
14.sept Víkingur R – FH
17.sept FH – ÍBV
24.sept Víkingur Ó - FH
30.sept FH - Breiðablik

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Alexander Freyr Einarsson, Brynjar Ingi Erluson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Kristófer Kristjánsson, Magnús Már Einarsson, Magnús Þór Jónsson.
Athugasemdir
banner
banner