Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 27. apríl 2021 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Nagelsmann gerir fimm ára samning við Bayern
Julian Nagelsmann tekur við Bayern
Julian Nagelsmann tekur við Bayern
Mynd: Getty Images
Julian Nagelsmann mun taka við Bayern München í sumar en Fabrizio Romano, íþróttafréttamaður á Sky Italia, fullyrðir þetta á Twitter.

Nagelsmann er samningsbundinn RB Leipzig til ársins 2023 en Bayern mun greiða Leipzig allt að 30 milljónir evra til að fá þýska þjálfarann.

Hansi Flick, núverandi þjálfari Bayern, mun hætta með liðið í sumar og taka við þýska landsliðinu en Nagelsmann var efstir maður á lista til að taka við.

Nagelsmann mun gera fimm ára samning við Bayern og þéna 15 milljónir evra en gæti þó hækkað upp í 20 milljónir evra í árslaun ef ákveðnum skilyrðum er mætt.

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham hafði einnig augu á Nagelsmann en félagið ætla að reyna að fá hann í sumar til að leysa Ryan Mason af hólmi. Mason stýrir liðinu út þetta tímabil.
Athugasemdir
banner
banner