Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 27. júní 2020 17:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Robben tekur fram skóna með Groningen (Staðfest)
Robben mætir aftur.
Robben mætir aftur.
Mynd: Getty Images
Arjen Robben hefur ákveðið að taka fram skóna og spila með Groningen í Hollandi á næstu leiktíð.

Robben, sem er í dag 36 ára, lagði skóna á hilluna síðasta sumar. Robben gerði flotta hluti með Bayern München, Real Madrid, Chelsea, PSV og Groningen á ferli sínum. Þá var hann lengi vel lykilmaður í hollenska landsliðinu.

Robben er uppalinn hjá Groningen og ætlar að hjálpa uppeldisfélagi sínu. „Það er draumur minn að klæðast aftur treyju Groningen," segir Robben.

Groningen var í níunda sæti hollensku úrvalsdeildarinnar var hætt í mars. Keppni í deildinni var svo aflýst og úrslit þurrkuð út í apríl.

Robben talaði um það í apríl að honum langaði að snúa aftur.


Athugasemdir
banner
banner