Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 27. júní 2022 18:45
Ívan Guðjón Baldursson
Botman stóðst læknisskoðun - Búinn að kveðja á samfélagsmiðlum
Mynd: EPA

Það styttist óðfluga í að Newcastle staðfesti kaup á hollenska miðverðinum Sven Botman. Hann kvaddi Lille og stuðningsmenn félagsins á samfélagsmiðlum í dag eftir að hafa staðist læknisskoðun.


Newcastle er talið borga um 37 milljónir evra fyrir Botman sem hefur verið lykilmaður hjá Lille síðustu tvö tímabil.

Newcastle gerði vel að vinna kapphlaupið um þennan öfluga miðvörð sem var sérstaklega eftirsóttur af Ítalíumeisturum AC Milan.

Botman vildi frekar ganga í raðir Milan en varð þreyttur á að bíða eftir nógu góðu kauptilboði frá félaginu svo hann ákvað að samþykkja samningsboðið frá Newcastle sem hafði þegar komist að samkomulagi við Lille um kaupverð.


Athugasemdir
banner
banner