Fotbolti.net
27.07.18 - 21:55
Brynjar Ingi Erluson

Arnór Snær: Töluðum um að nú þyrftu menn að leggja punginn á borðið

Auglýsing
Arnór Snær Guðmundsson átti frábæran leik í kvöld

Arnór Snær Guðmundsson átti frábæran leik í kvöld

Canon

Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir

Arnór Snær Guðmundsson, varnarmaður ÍA í Inkasso-deildinni, var hress eftir 5-0 sigur á Þór í kvöld en hann gerði tvö mörk fyrir heimamenn.
Arnór hefur verið öflugur í sumar en hann er nú kominn með fimm mörk í heildina í sumar í deild- og bikar.

Hann gerði fyrstu tvö mörk ÍA í kvöld og var sáttur með sigurinn en liðið hafði verið í örlítilli lægð í síðustu leikjum.

„Þetta sýnir hvers megnugir við erum þegar menn hafa trú á sínum hæfileikum og þora að framkvæma hlutina. Við fórum yfir það fyrir leik að nú þyrftu menn að leggja punginn á borðið og fara að spila eins og menn,\" sagði Arnór við Fótbolta.net.

„Þetta er búið að vera að vinda upp á sig í síðustu leikjum. Við byrjuðum mótið sterkt og náðum í marga sigra í röð í byrjun en svo varð þetta svolítið flatt. Við ætlum að vera ofarlega og ætlum okkur upp og vinna þessa deild, það voru yfirlýst markmið og hefur ekkert breyst.\"

„Þetta er ótrúlegt en satt. Við förum inn í þetta með það markmið að skora og núna erum við hafsentarnir búnir að skora sjö mörk, sem er það sama og fremsti maður sem er ánægjulegt,\"
sagði hann ennfremur.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.