Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. júlí 2022 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
KV fær unglingalandsliðsmann og Freyþór á láni (Staðfest)
Lengjudeildin
Stefán Orri
Stefán Orri
Mynd: Fram
Greint var frá því í gær að KV hefði fengið Bele Alomerovic á láni frá Val út tímabilið.

Bele var ekki eini leikmaðurinn sem KV fékk á gluggadeginum því tveir til viðbótar fengu félagaskipti fyrir miðnætti í gær.

Það voru þeir Stefán Orri Hákonarson og Freyþór Hrafn Harðarson. Báðir koma þeir á láni út tímabilið.

Stefán Orri er fæddur árið 2005 og á að baki þrjá U17 leiki. Hann kemur á láni út tímabilið frá Fram. Hann er miðjumaður sem hefur spilað með 2. flokki Fram í sumar og lék með meistaraflokki á undirbúningstímabilinu.

Freyþór kemur frá Þrótti Vogum. Hann er 24 ára miðvörður sem uppalinn er hjá Völsungi. Hann hefur einnig leikið með Magna á sínum ferli. Hann kom við sögu í fjórum leikjum með Þrótti fyrri hluta tímabilsins.

KV er í ellefta sæti Lengjudeildarinnar með átta stig eftir fjórtán leiki.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner