Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   lau 27. nóvember 2021 10:00
Victor Pálsson
Arteta hlustar ekki á tilboð í Pepe
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, ætlar ekki að hlusta á tilboð í vængmanninn Nicolas Pepe en hann er orðaður frá félaginu.

Pepe hefur ekki staðist væntingar síðan hann kom frá Lille árið 2019 en hann kostaði þá 72 milljónir punda.

Pepe hefur aðeins spilað 122 mínútur í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni sem er ansi lítið og því er hann orðaður við önnur félög.

Að sögn Arteta þá er Pepe hins vegar ekki til sölu en nú styttist í að janúarglugginn opni.

„Nei og þetta er ekki rétti tíminn til að tala um það. Við viljum að Nico spili eins og við vitum að hann getur gert," sagði Arteta.

„Hann hefur átt mjög góð augnablik síðan ég kom hingað en stundum spilar hann ekki eins mikið, alveg eins og aðrir leikmenn."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner