Fotbolti.net
27.11.21 - 08:00
Victor Pálsson
Ítalski boltinn

Inter býst við að Brozovic framlengi

Inter býst við að Brozovic framlengi
Canon

Mynd: Getty Images

Lið Inter Milan er mjög vongótt um að miðjumaðurinn Marcelo Brozovic sé að skrifa undir nýjan samning við félagið.
Þessi öflugi króatíski landsliðsmaður er oft orðaður við önnur félög og þá sérstaklega lið sem spila á Englandi.

Tottenham, Manchester United og Newcastle eru á meðal þeirra liða en Brozovic verður samningslaus næsta sumar.

Samkvæmt ítölskum miðlum hefur Inter þó enga trú á því að Brozovic sé að fara og að hann muni krota undir fyrir janúar.

Í janúar má leikmaðurinn ræða við önnur félög þar sem sex mánuðir eru eftir a f hans samningi.

Nicola Barella og Lautaro Martinaz hafa nú þegar framlengt sína samninga og má búast við að Brozovic sé næstur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.