Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 27. nóvember 2021 19:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Erfiðara en búist var við fyrir Bayern
Sane í leik með Bayern á tímabilinu.
Sane í leik með Bayern á tímabilinu.
Mynd: EPA
Bayern 1 - 0 Arminia Bielefeld
1-0 Leroy Sane ('71 )

Kantmaðurinn Leroy Sane var hetja Bayern München er liðið lagði Arminia Bielefeld að velli í þýsku úrvalsdeildinni.

Fyrirfram var búist við öruggum sigri Bayern, en gestirnir mættu og gáfu stórveldinu alvöru leik.

Bayern tókst ekki að brjóta ísinn fyrr en á 71. mínútu þegar Sane skoraði með góðu skoti eftir sendingu frá engum öðrum en Thomas Müller.

Afar svekkjandi fyrir Bielefeld sem gerði að mörgu leyti mjög vel í leiknum.

Bayern er á toppnum í Þýskalandi með einu stigi meira en Borussia Dortmund sem er í öðru sæti. Bielefeld er í næst neðsta sæti með níu stig úr 13 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner