Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 28. janúar 2021 12:00
Magnús Már Einarsson
Bakvarða vandræði hjá Tottenham fyrir leikinn við Liverpool
Serge Aurier verður mögulega vinstri bakvörður í kvöld.
Serge Aurier verður mögulega vinstri bakvörður í kvöld.
Mynd: Getty Images
Tottenham er í meiðslavandræðum í bakvarðastöðunum fyrir leikinn við Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Vinstri bakvörðurinn Sergio Reguilon er meiddur aftan í læri. Annar vinstri bakvörður, Ben Davies, er einnig tæpur sem og hægri bakvörðurinn Matt Doherty.

Serge Aurier, hægri bakvörður, gæti því möglega fengið það verkefni að spila í vinstri bakverði í kvöld.

Ef það verður niðurstaðan er líklegast að Japhet Tanganga eða Moussa Sissoko verði í hægri bakverði.

Liverpool hefur ekki skorað í fjórum leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni og mun freista þess að brjóta ísinn gegn Tottenham í kvöld en leikurinn hefst klukkan 20:00.
Athugasemdir
banner
banner