Chelsa hefur áhuga á að fá Erling Braut Haaland, framherja Dortmund, og David Alaba, varnarmann Bayern Munchen, í sínar raðir í sumar að sögn Sky Sports.
Thomas Tuchel tók við stjórnartaumunum hjá Chelsea í vikunni og hann horfir til heimalandsins Þýskalands eftir liðsstyrk í sumar.
Thomas Tuchel tók við stjórnartaumunum hjá Chelsea í vikunni og hann horfir til heimalandsins Þýskalands eftir liðsstyrk í sumar.
Haaland hefur skorað 37 mörk í jafnmörgum leikjum fyrir Dortmund á einu ári hjá félaginu.
Þessi tvítugi Norðmaður er með riftunarákvæði upp á 66 milljónir punda í samningi sínum.
Alaba verður samningslaus í sumar og ætlar að fara frá Bayern en þessi 28 ára gamli Austurríkismaður hefur einnig verið orðaður við Real Madrid.
Athugasemdir