Orlando City er að ganga frá kaupum á Degi Dan Þórhallssyni frá Breiðabliki.
Hann fer samkvæmt heimildum Fótbolta.net í læknisskoðun í dag.
Hann fer samkvæmt heimildum Fótbolta.net í læknisskoðun í dag.
Dagur var einn allra besti leikmaður Bestu deildarinnar á síðasta tímabili stefnir allt í að hann muni spila í bandarísku MLS-deildinni á komandi tímabili.
Dagur er 22 ára miðjumaður sem lék sinn fyrsta A-landsleik í nóvember og eru þeir nú orðnir alls fjórir.
Breiðablik keypti hann frá Mjöndalen í Noregi fyrir síðasta tímabil eftir að Dagur hafði spilað með Fylki á láni frá norska félaginu tímabilið 2021.
Sjá einnig:
„Leikmaður eins og Dagur Dan er alltaf missir"
Segir Orlando greiða tæplega 30 milljónir fyrir Dag
Athugasemdir