Fotbolti.net
28.01.25 - 08:21
Elvar Geir Magnússon

Coote er kominn út úr skápnum

Coote er kominn út úr skápnum og hefur beðist afsökunar á gjörðum sínum.

Coote er kominn út úr skápnum og hefur beðist afsökunar á gjörðum sínum.

Canon

Mynd: Getty Images

David Coote segist hafa leynt kynhneigð sinni á meðan hann var dómari í ensku úrvalsdeildinni, af ótta við viðbrögðin. Coote, sem er 42 ára, hefur opinberað það að hann sé samkynhneigður.

Coote var rekinn sem dómari í desember og segir að pressan sem fylgir starfinu hafi valdið því að hann fór út af sporinu.
Coote rekinn sem dómari í ensku úrvalsdeildinni (Staðfest)
TENGT EFNI

Coote rekinn sem dómari í ensku úrvalsdeildinni (Staðfest)

„Ég er samkynheigður og hef lengi falið tilfinningar mínar. Ég hef orðið fyrir ofsóknum á dómaraferli mínum og ef kynhneigð mín hefði spilað inn í hefði þetta orðið enn erfiðara," segir Coote í viðtali við The Sun.

Hann segist hafa fundið fyrir skömm þegar hann var táningur og hafi sagt foreldrum sínum frá kynhneigð sinni fyrr en hann var 21 árs og vinum sínum þegar hann var 25 ára.

Coote var rekinn fyrir áramót eftir að myndband fór í dreifingu þar sem hann fór ófögrum orðum um Jurgen Klopp. Í kjölfarið birtist svo annað myndband þar sem hann sást neyta eiturlyfja á meðan hann var við störf á EM. Einnig var fjallað um að hann hefði verið að plana eiturlyfjapartí á meðan hann var að starfa á leik.

„Þetta hefur verið einn erfiðasti kaflinn í lífi mínu. Ég tek fulla ábyrgð á gjörðum mínum, ég brást því sem ætlast var af mér. Ég biðst afsökunar á að hafa orðið valdur að neikvæðri umfjöllun um íþróttina sem ég elska," segir Coote sem segir að hann hafi sokkið djúpt í erfiðleikum í einkalífinu.

Coote segist hafa farið í dimman dal eftir að myndbandið af honum frá EM fór í dreifingu og að hann sé ekki viss um að hann „væri hérna í dag“ án stuðnings fjölskyldu sinnar og samstarfsfélaga. Hann hefur gengist undir meðferð vegna lyfjafíknar og segist vera kominn í betri mál í dag.
Coote var rekinn sem dómari í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa dæmt yfir 100 leiki í deildinni.

Coote var rekinn sem dómari í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa dæmt yfir 100 leiki í deildinni.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.