Real Sociedad 1 - 0 Valladolid
1-0 Adnan Januzaj ('60 )
1-0 Adnan Januzaj ('60 )
Adnan Januzaj, fyrrum leikmaður Manchester United, var hetja Real Sociedad í sigri á Real Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni á þessu föstudagskvöldi.
Januzaj, sem er núna 25 ára, braust fram á sjónarsviðið hjá Man Utd undir stjórn David Moyes, en náði svo ekki að fylgja því almennilega eftir. Hann spilaði allan leikinn í kvöld og skoraði sigurmarkið þegar klukkutími var liðinn af leiknum.
Markið má sjá hérna.
Real Sociedad fer með sigrinum í kvöld upp í þriðja sæti deildarinnar. Valladolid, sem er í eigu brasilísku goðsagnarinnar Ronaldo, er í 15. sæti, sjö stigum frá fallsæti.
Athugasemdir