Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   mið 28. febrúar 2024 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikarinn: Selfoss nældi í sinn fyrsta sigur
Valdimar Jóhannsson
Valdimar Jóhannsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍH 2 - 4 Selfoss
0-1 Aron Fannar Birgisson ('1 )
0-2 Valdimar Jóhannsson ('8 )
0-3 Valdimar Jóhannsson ('16 )
1-3 Arnar Sigþórsson ('31 )
2-3 Viktor Smári Segatta ('81 )
2-4 Elías Karl Heiðarsson ('90 )


Selfoss nældi í sinn fyrsta sigur í Lengjubikarnum í vetur þegar liðið heimsótti ÍH í riðli eitt í B deildinni.

Selfoss komst í góða stöðu snemma en staðan var orðin 3-0 eftir rúmlega stundarfjórðung.

Arnar Sigþórsson tókst að klóra í bakkann fyrir ÍH áður en flautað var til loka venjulegs leiktíma. Viktor Smári Segatta minnkaði muninn enn frekar en Elías Karl Heiðarsson gulltryggði sigur Selfoss með marki í uppbótatíma.

Selfoss er í 2. sæti riðilsins með fimm stig en ÍH á botninum án stiga.


Lengjubikar karla - B-deild, riðill 1
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Haukar 5 4 1 0 16 - 9 +7 13
2.    Augnablik 5 2 3 0 18 - 9 +9 9
3.    Selfoss 5 2 2 1 12 - 10 +2 8
4.    Víðir 5 1 3 1 11 - 12 -1 6
5.    Reynir S. 5 1 0 4 10 - 16 -6 3
6.    ÍH 5 0 1 4 7 - 18 -11 1
Athugasemdir
banner
banner
banner