Íslenska U21 landsliðið leikur í dag sinn annan leik á Evrópumótinu en leikið er í Györ í Ungverjalandi. Komið er að leik gegn Danmörku í C-riðli en leikurinn hefst klukkan 13:00 að íslenskum tíma.
Arnar Laufdal Arnarsson mun textalýsa leiknum hér á Fótbolta.net.
Ísland fékk skell gegn Rússlandi í fyrstu umferð en Danmörk gerði sér lítið fyrir og vann Frakkland. Rússar og Frakkar mætast einmitt í kvöld.

Davíð Snorri Jónasson hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir leik dagsins en Mikael Anderson er einn þriggja leikmanna sem koma inn í byrjunarliðið.
Mikael kemur inn í staðinn fyrir Ísak Bergmann Jóhannesson. Þá kemur Ísak Óli Ólafsson inn í hjarta varnarinnar í stað Róberts Orra Þorkelssonar og Kolbeinn Birgir Finnsson byrjar í stað nafna síns Kolbeins Þórðarsonar.
Davíð heldur sig við sama miðjutríó og gegn Rússlandi.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu
Athugasemdir