Íslenska landsliðið leikur við Armeníu í undankeppni HM 2022 í dag en um er að ræða annan leik liðsins í keppninni, liðið tapaði gegn Þjóðverjum á fimmtudaginn.
Eins og kom fram í gær snjóaði mikið á vellinum þegar liðið æfði þar en veður er mun betra í dag, um 8 stiga hiti og sólin er að bræða snjóinn.
Íslenska liðið skellti sér í stuttan göngutúr í skemmtigarði sem er við hótelið í morgun og allir eru klárir í slaginn í kvöld.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir úr göngutúrnum.
Armenía - Ísland hefst 16:00 og er í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net auk þess að vera sýndur á RÚV.
Athugasemdir